top of page

Kynning fyrir eðlisfræðinema við Háskóla Íslands

Nov 9
1 min read

Fulltrúar FLEÍ frá geislaeðlisfræðideild Landspítalans, ísótópastofu og röntgendeild Landspítalans, og Geislavörnum ríkisins fluttu kynningu fyrir nemendur í grunnnámi í eðlisfræði við Háskóla Íslands föstudaginn 6. nóvember 2026.

Edda Lína Gunnarsdóttir, stjórnarmaður í FLEÍ og læknisfræðilegur eðlisfræðingur á Geislavörnum ríkisins hóf fundinn og kynnti fagið í stuttu máli auk þess að kynna nám í greininni.

Gauti Baldvinsson og Erna Kristín Elíasdóttir eðlisfræðingar á geislaeðlisfræðideild Landspítalans fluttu erindið "Hvernig drepa eðlisfræðingar krabbamein með geislun?" þar sem stiklað var á stóru yfir eðlisfræðina á bak við geislameðferð og aðkomu læknisfræðilegra eðlisfræðinga að geislameðferð við krabbameini.

Eyjólfur Guðmundsson kynnti að lokum störf læknisfræðilegra eðlisfræðinga á Geislavörnum ríkisins ásamt námsmöguleikum í framhaldsnámi í greininni.

Hanna Björg Henrysdóttir formaður FLEÍ og deildarstjóri geislaeðlisfræðideildar, og Áshildur Logadóttir læknisfræðilegur eðlisfræðingur á ísótópastofu og röntgendeild Landspítalans voru einnig viðstaddar, sátu fyrir svörum og sögðu frá námsferli sínum ásamt öðrum fulltrúum FLEÍ.

Fundinn sátu um 20 nemendur og starfsfólk. FLEÍ þakkar eðlisfræðideild kærlega fyrir góðar viðtökur og fyrir að leyfa okkur að kynna nám og störf í læknisfræðilegri eðlisfræði fyrir grunnnemum deildarinnar.


© Félag læknisfræðilegra eðlisfræðinga á Íslandi | kt. 590423-1810 | flei (at) flei.is

bottom of page