Nám í læknisfræðilegri eðlisfræði
Læknisfræðilegir eðlisfræðingar eru fagstétt í heilbrigðisþjónustu sem sérhæfir sig í réttri, nákvæmri og öruggri notkun jónandi geislunar. Læknisfræðilegir eðlisfræðingar hafa lokið framhaldsnámi á háskólastigi í faginu auk þess að hafa hlotið klíníska starfsþjálfun í sérgrein á borð við geislameðferð eða myndgreiningu. Nám í læknisfræðilegri eðlisfræði er ekki í boði á Íslandi eins og staðan er núna og óljóst hvenær það skref verður stigið í háskólum landsins.
Töluverður breytileiki er meðal landa hver leiðin er að því að verða læknisfræðilegur eðlisfræðingur, en í flestum löndum er leiðin grunnnám í eðlisfræði eða verkfræði, meistaranám í læknisfræðilegri eðlisfræði og síðan launuð starfsþjálfun á spítala (eða sambærilegri stofnun). Starfsþjálfunin er yfirleitt sérhæfð á því sviði sem viðkomandi hefur valið sér innan læknisfræðilegrar eðlisfræði. Einstaka lönd bjóða upp á grunnnám í læknisfræðilegri eðlisfræði (t.d. Svíþjóð).
Mikil umræða hefur verið erlendis um að samræma menntun og leiðina að starfsleyfi læknisfræðilegra eðlisfræðinga. European Federation of Organisations for Medical Physics (EFOMP), regnhlífarsamtök fyrir evrópsk landssamtök læknisfræðilegra eðlifræðinga, hefur lagt ríka áherslu á að samræma þjálfun stéttarinnar innan Evrópu og unnið að tillögum þess efnis. Aðrar stofnir sem lagt hafa hönd á plóg eru Alþjóða kjarnorkumálastofnunin (IAEA) og International Organization for Medical Physics (IOMP).
Þó enn sé áherslumunur á innihaldi framhaldsnáms í greininni þá er yfirleitt fjallað um víxlverkun geislunar við vef, líffærafræði (e. anatomy) og lífeðlisfræði (e. physiology), tækjabúnað, myndvinnslu og myndgreiningu, mælitækni, tölfræði, gagnavinnslu, forritun og oft siðfræði. Framhaldsnámi lýkur með rannsóknarverkefni (sem oft er tekið undir handleiðslu læknisfræðilegs eðlisfræðings innan spítala sem háskólinn hefur tengsl við). Nemendur hafa einhver tök á að sníða námið eftir áhugasviði og hvaða sérhæfingu viðkomandi stefnir á og oftast endurspeglar val á rannsóknarverkefninu sérhæfinguna sem verður fyrir valinu í starfsþjálfun.
Vestanhafs í Bandaríkjunum og Kanada er hægt að sækja um doktorsnám í læknisfræðilegri eðlisfræði beint eftir BSc gráðu í eðlisfræði (aðrar raunvísindagreinar eða verkfræði koma líka til greina eftir atvikum) og er yfirleitt um a.m.k. 5 ára nám að ræða. Yfirleitt er framhaldsnemum greidd laun á meðan á framhaldsnáminu stendur. Einnig eru fjölmargir háskólar í N-Ameríku sem bjóða upp á styttra meistaranám í greininni en slíku námi geta fylgt há skólagjöld.
Nokkur erlend fagfélög í læknisfræðilegri eðlisfræði:
Nokkrir háskólar sem bjóða upp á framhaldsnám í læknisfræðilegri eðlisfræði:
-
Framhaldsnám í Evrópu
-
Framhaldsnám í Bandaríkjunum og Kanada
-
University of Wisconsin: PhD and Master's Programs in Medical Physics
-
Listi yfir framhaldsnám í læknisfræðilegri eðlisfræði í Bandaríkjunum og Kanada sem hafa fengið svokallaða CAMPEP viðurkenningu: CAMPEP Accredited Graduate Programs in Medical Physics
